Undirbúningur fyrir brjóstnám

Margrét Lilja
Margrét Lilja

Undirbúningur fyrir brjóstnám - Hvað þarf ég að taka með mér?

Brjóstnám er mjög stór aðgerð og nauðsynlegt að vera búinn að undirbúa sig vel andlega og líkamlega fyrir aðgerðirnar. 

Margrét Lilja þurfti að fara í sex aðgerðir á einu ári í sínu brjóstnámsferli og var því komin með smá rútínu á það hvernig hún undirbjó sig heima og hvað hún tók með sér á aðgerðardaginn. Hér lýsir Margrét Lilja sinni reynslu varðandi undirbúning.

Undirbúningur fyrir aðgerð: Þegar ég fékk staðfestan aðgerðardag setti ég upp smá plan í höfðinu fyrir mig þar sem ég vildi vera sem best upplögð fyrir aðgerðina. Oftast fékk ég að vita aðgerðardag með eins til þriggja mánaða fyrirvara. Auðvitað eru engir tveir einstaklingar eins og þarf því hver og einn að gera það sem hann telur best fyrir sig, en svona reyni ég að undirbúa mig:

Hreyfing - Ég vil vera í mínu besta formi á aðgerðardaginn. Það þýðir ekki að ég hafi farið viku fyrir aðgerð og hlaupið á hverjum degi, síður en svo. Ég stunda reglulega hreyfingu en passaði mig að hafa léttar æfingar síðustu tvo daga fyrir aðgerð. Ég vildi ekki vera með harðsperrur eða strengi í bataferlinu ofan á allt annað.

Andleg heilsa - Jákvæðni skiptir öllu máli. Bæði fyrir og eftir aðgerð reyndi ég af öllum mætti að vera meðvituð um það að ég ein gæti haft áhrif á líðan mína og ég vel alltaf að hugsa um góðu hlutina og það jákvæða í kringum mig. Ég reyni að takast á við krefjandi verkefni með jákvæðu hugarfari. Þetta skiptir sérstaklega miklu máli sólahring fyrir aðgerð og dagana eftir aðgerð. 

Mataræði - ég reyni að hugsa vel um mataræðið. Á síðasta ári hef ég gert töluverðar breytingar á mataræðinu hjá mér, en það hefur gerst mjög hægt og er bara eitthvað sem ég hef í huga. Ég reyni að minnka sykur og bæta við grænmeti, ekkert bannað samt nema kannski svona helst svart gos. Tveim vikum fyrir aðgerð hætti ég að taka vítamín og lýsi en það geta alltaf verið aukaefni í svoleiðis sem valda vandamálum, hverjum hefði t.d. dottið í hug að lýsi væri blóðþynnandi og gæti því valdið vandamálum í aðgerðum? Ég gæti alveg farið með vítamínin til læknisins og beðið hann að fara yfir öll innihaldsefnin, en mér finnst bara betra að sleppa þeim. 

Aðstaða - Ég fékk rafmagnsrúm rétt fyrir fyrstu aðgerðina. Við vorum eiginlega ekki pláss fyrir það (vorum með 3 rúm inni í hjónaherbergi) en ég hefði EKKI viljað vera án þess. Ég hef alla tíð sofið á maganum eða hliðinni, en eftir brjóstnám þá er það ekki hægt. Fyrstu dagana eða jafnvel vikurnar á eftir svaf ég í rafmagnsrúminu og ef ég vaknaði vegna þess að mér finnst eins og þyrfti að hreyfa mig, þá breytti ég aðeins stöðunni á rafmagnsrúminu og hélt áfram að sofa. Annað sem ég passaði var t.d. tengi fyrir símann nálægt og svo setti ég tannburstann minn á sömu hæð og hjónaherbergið er (ég bý á tveimur hæðum). En þá þurfti ég ekkert að vera að fara upp og niður stigann að óþörfu fyrstu dagana eftir að ég kom heim. Ég passaði upp á að hlutir sem ég vildi hafa aðgengilegir væru það. Síðan fóru alltaf síðustu tveir dagarnir í að þrífa heima hjá mér, þvo rúmfötin o.fl.

Gott að taka með sér upp á spítala:

  • Símabatterí - til að hlaða símann en hafa hann samt nálægt þér. Væri líka nóg að vera með langa hleðslusnúru. 
  • Headphone - til að geta hlustað á sögu. 
  • Skyrtu eða peysu sem er rennd eða hneppt að framan - eitthvað sem er auðvelt að fara í og úr. 
  • Þægilegar buxur sem auðvelt er að fara í og úr - þótt aðgerðarsvæðið sé brjóstkassinn þá getur maður verið aumur að nota hendurnar og því gott að það sé ekki vesen að fara í og úr buxunum. 
  • Belti eða eitthvað til að festa drenin í - lang flestir ef ekki allir vakna með dren eftir brjóstnám, og gott er að vera búin undir það. 
  • Súkkulaði - ég hef reyndar ekki gert þetta. En var eiginlega hálf skömmuð fyrir það síðast á vöknun að hafa ekki komið með eitthvað þar sem ég er alltaf með svima og yfirliða vesen, þannig að ég bætti því á listann til að taka með næst.
Leit